Yamaha YSP-1100 heimabíó
YSP-1100 er ný uppfærsla af hinum vinsæla YSP-1000. Um er að ræða fullkomið heimabíó og afar hentug lausn fyrir þá sem vilja hafa gott heimabíó en samt vera laus við stóran magnara, snúrur og hátalara um alla stofuna.
YSP-1100 er stóri bróðir hins geysivinsæla YSP-900 og kemur nú í stærri og meiri umbúðum. Tækið samanstendur af 40 littlum stafrænum kraftmögnurum sem eru á bakvið hvern af þeim 40 stefnuvirku smáhátölurum sem tækið hefur að bjóða ásamt tveimur bassahátölurum.
Þetta glæsilega tæki hentar bæði sem heimabíókerfi jafnt sem hefðbundnar heimilisgræjur. Þetta tæki kemur í svörtu og silfurlituðu og passar því fullkomlega við LCD- eða Plasma sjónvörp og er hannað með 42" flatsjónvörp í huga.
Tækið er mjög einfalt í uppsetningu. Í tækinu er valmyndarkerfi sem tengist með Composite myndtengi í sjónvarpstækið þitt þar sem þú ferð í gegnum stærð rýmis, fjarlægð, staðsetningar svo fátt eitt sé nefnt. Eftir búið er að setja inn helstu upplýsingar þá aðlagar tækið sig eftir aðstæðum með hljóðnemanum sem kemur með pakkanum og notar sérstaka tækni sem heitir IntelliBeam sem er skrásett vörumerki frá Yamaha. Með þessu ertu að segja tækinu hvar þú ert og aðlagar tækið sig eftir því, plús mælir rýmið og skynjar veggina sem það notar til hljóðdreifingar.
YSP-1100 er með eftirfarandi hljóðblöndun: Dolby Digital, DTS, Dolby Pro Logic II (Movie, Music and Game) and DTS Neo:6 (Cinema and Music). Enn fremur býður tækið upp á mismunandi heimabíó: 5 Beam, 3 Beam, Stereo + 3 Beam, Stereo and Target Mode og 7 CINEMA DSP tónlistarstillingar.
http://www.hataekni.is/vorur/hljomtaeki/ysp/pnr/427
Monday, September 17, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment